Þessi uppskrift er fullkomin á köldum dögum. Uppskriftin passar fyrir 4 stórar skálar af súpu.
Súpan er matarmikil og stútfull af næringu. Þurrristuðu hneturnar sem toppur er algjört möst til að fá smá bit í súpuna.
Við notuðum þrjár tegundir af kartöflum í hana í þetta skiptið; Venjulegar sætar kartöflur, fjólubláar sætar kartöflur og gullauga.


Við ákváðum að prófa að mauka helminginn af súpunni með töfrasprota og það kom mjög vel út.
Malasíusúpa

Ljúffeng og seðjandi súpa með sætum kartöflum.
Ingredients
- 2 msk olía til steikingar
- 1 stór laukur, saxaður
- 2 hvítlauksgeirar, pressaður
- 1 1/2 msk ferskt engifer, smátt saxað
- 1 msk túrmerik
- 1 msk karrí de lúx
- 1 msk kóríander krydd
- 1 tsk cayenne pipar
- 2 meðalstórar sætar kartöflur, við notuðum eina venjulega og eina fjólubláa, skornar í munnbita
- 1 meðalstór kartafla, skorin í munnbita
- 1 dós hakkaðir tómatar
- 2 grænmetistengingar
- 1L vatn
- 3-4 msk hnetusmjör
- Safi úr hálfri lime
- 4 msk soya sósa
- 1 tsk fiskisósa, hægt að sleppa ef vegan, þá meira af soya sósu í staðinn
- 1 dós kókosmjólk
- Toppað með: – Þurrristuðum hnetum
– Ferskum kóríander
– Ferskum lime safa
Directions
- Hitið olíu á djúpri pönnu eða súpupotti við miðlungshita
- Steikið lauk upp úr olíunni, passið að mýkja laukinn vel og bætið svo hvílauk og engifer við og steikið í skamma stund. Passið að brenna ekki hvítlaukinn.
- Bætið kryddum saman við og steikið í 1-2 mín í viðbót eða þar til kryddin gefa frá sér góðan ilm
- Setjið alla kartöflubitana í pottinn ásamt 1 dós af hökkuðum tómötum, 2 grænmetisteningum og 1L af vatni
- Leyfið suðu að koma upp og sjóðið í um 10 mín, eða þar til kartöflurnar eru tilbúnar (mjúkar ef stungið er í þær með gaffli)
- Setjið hnetustmjör í sér skál og setjið 2 dl af heitu súpunni úr pottinum yfir hnetusmjörið, hrærið svo hnetusmjörið leysist vel upp og setjið svo allt saman við súpuna aftur
- Bætið við safa úr hálfri lime, soya sósu og fiskisósu
- Bætið við kókosmjólkinni og leyfið súpunni að hitna vel í gegn
- Smakkið til með soya sósu, lime safa og kryddunum
- Toppið súpuskálarnar með þurrristuðum hnetum, ferskum kóríander og safa úr lime
Njótið!
