Gómsætt Spaghettí Bolognese sem fjölskyldan gúffaði í sig.
Gardein hakkið er í miklu uppáhaldi og það fæst í frystinum í Krónunni. Ef það er ekki til þá kaupum við yfirleitt vegan hakkið frá Anamma sem er líka mjög gott (sjá mynd). Það er líka hægt að gera þessa uppskrift með brúnum linsubaunum en þá þarf að gera ráð fyrir aðeins meiri vökva svo linsurnar verði mjúkar og góðar.
Spaghettí Bolognese

Vistkeravænt Spaghettí Bolognese
Ingredients
- 400 gr heilhveiti spaghettí
- 2 msk hitaþolin ólífuolía
- 2 stilkar sellerí
- 2 gulrætur
- 2 gulir laukar
- 2-3 hvítlauksrif
- 3 stilkar ferskt rósmarín
- 1 poki vegan hakk (t.d. Gardein eða Anamma)
- Salt og pipar
- 2 dósir góðir tómatar (Mutti)
- 2 tsk oregano
- Búnt af basilikku, saxað
- 2 lárviðarlauf
- 2 msk tómatpúrra
- 2 grænmetisteningar
- 1 rauður chili, saxaður (sleppið fræjum ef þið viljið ekki hafa réttinn sterkan)
- 125 ml rauðvín (má sleppa en gefur rosalega gott bragð)
- 7 litlir tómatar
- 75gr parmesan ostur
- 1 msk chiliolía
Directions
- Skerið sellerí, gulrætur, lauk og hvítlauk smátt
- Saxið rósmarínlauf
- Hitið olíu í góðum potti á miðlungshita
- Steikið vegan hakkið í pottinum og setjið hakkið svo í skál og geymið
- Svitið grænmeti í 10 mín ásamt rósmarín í sama potti án þess að þrífa á milli, hrærið reglulega þar til grænmetið er orðið mjúkt
- Setjið tómata úr dós, oregano, saxaða basilikku, lárviðarlauf, tómatpúrru, grænmetisteninga, chili og rauðvín ofan í pottinn og hrærið vel
- Leyfið suðu að oma upp og sjóðið í 1 klst og 15 mín
- Á meðan sósan sýðyr, rífið niður 75 gr af parmesan osti og setjið til hliðar
- Þegar búið er að sjóða sósuna er spaghettí soðið í vel söltu vatni skv. leiðbeiningum á pakka
- Bætið parmesan osti og steiktu hakki út í sósuna og smakkið til með salti, pipar og chili olíu
- Ef sósan er súr þá má bæta örlitlum sykri ofan í, en það er yfirleitt óþarfi
- Njótið með extra parmesan og ferskri basilikku
Njótið!






